Feng Shui í svefnherberginu þínu!

EINKA-NÁMSKEIÐ

Viltu nýta svefntímann betur til hvíldar?

Viltu njóta betri ásta og unaðar?

Viltu fá aukna orku í svefnherbergið?

Er eitthvað öðruvísi en þið viljið – en vitið ekki hvað?

Ertu oft með höfuðverk?

Færir þú þig alltaf í svefni á sama stað í rúminu?

Ef þú færð ekki nægan svefn til lengdar þá kemur það niður á heilsu þinni, vellíðan og hamingju þinni. Þín líðan skiptir miklu máli, ekki aðeins fyrir þig heldur líka fyrir fólkið þitt, alla þá sem þú umgengst, bæði í einkalífi og starfi.

Þegar þér líður vel þá er líklegra að þú eigir auðvelt með að dreifa hamingju og gleði í kringum þig.

Ef þú færð ekki nægilega hvíld, þá kemur það fljótt fram í einhverskonar stressi, vanlíðan og síðan gæti það orðið að lasleika.

Svefnherbergið þitt á að vera þér unaðsreitur, þangað átt þú að geta sótt þér jákvæða orku, hvíld, ást og unað.

  • Svefnherbergið á ekki að vera hluti af vinnustofu. Það á heldur ekki að þróast upp í geymslu, þangað sem hlutum er skotið undan þegar gesti ber að garði.
  • Svefnherbergið þitt er eitt mikilvægasta herbergið í íbúðinni, það ætti að lýsa af hamingju og vellíðan. Þangað á að vera hægt að sækja styrk, „hlaða batteríin“.

Þú sendir okkur: fæðingardag, fæðingarár og kyn …. varðandi þig (og maka þinn ef það á við). Sendu okkur 4 myndir af aðstæðum í svefnherberginu og sendu okkur líka eina mynd sem sýnir svæðið sitt hvoru megin við dyragættina inn i svefnherbergið.

Einnig ber að huga að hvaða rými liggja að svefnherberginu?

Innifalið í þessari þjónustu er líka: Bestu áttirnar þínar og nýting þeirra

Athugið. Öll Feng Shui vinna er 100% trúnaðarvinna.

This form is currently undergoing maintenance. Please try again later.