Það hljómar ef til vill dálítið undarlega ef þú ert rétt að byrja að kynna þér Feng Shui fræðin, en þar er lögð mikil áhersla á að það geti skipt einstakling miklu máli, bæði hvað varðar t.d. heilsufar og vellíðan í hvaða áttavitaátt hvirfill þinn (hvirfill = efsta svæðið á höfðinu) snýr þegar þú sefur. Þess vegna er það sem fólk leggur áherslu á að fá að vita hvort rúmið snúi í rétta átt!

Samkvæmt Feng Shui fræðunum fornu á sérhver einstaklingur sér „fjórar bestu áttavitaáttir“ og aðrar fjórar sem henta viðkomandi ekki jafn vel. Hvaða áttavitaáttir þetta eru ræðst af fæðingardegi, fæðingarári og kyni þess sem í hlut á.

Það er talað um „bestu árangurs-sáttina“ – „bestu heilsu-áttina“ – „bestu-samskiptaáttina“ og svo „bestu visku/lærdóms- áttina“.
Þú ættir t.d. helst að sofa þannig í rúminu að hvirfill þinn snúi í eina af „bestu“ áttunum þínum.
Þegar þú veist hvaða áttavitaáttir ættu að hagnast þér best getur þú nýtt þér það á ýmsan hátt.

  • Í hvaða átt er best að snúa þegar þú sefur?
  • Hvaða átt hentar best að snúa skrifborðinu þínu fyrir bestan árangur?
  • Hvaða áttir er best að forðast til að fyrirbyggja óþarfa mótbyr og erfiðleika?

Afhendingartími upplýsinga um bestu áttirnar er 48 klst frá því að gengið er frá greiðslu pöntunar.

Þú færð senda skýrslu um áttirnar þínar og hvernig þú nýtir þær best

Upplýsingar sem þarf að senda til að fá upplýsingar um „bestu áttir “ einstaklings:  Nafn – kyn – fæðingardag og fæðingarár

Verð:

790 kr.8,990 kr.

Bestu áttirnar fyrir þig og þína

Í hvaða átt er best að snúa þegar þú sefur?
Hvaða átt hentar best að snúa skrifborðinu þínu fyrir bestan árangur?
Hvaða áttir er best að forðast til að fyrirbyggja óþarfa mótbyr og erfiðleika?